Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júlí 2024 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og fjölga notkunareiningum með því að skipta notkunareiningu 0101 upp í þrjár; 0101, óráðstafað atvinnurými á 1. hæð, rými 0201, skrifstofurými og 0203, skrifstofurými og til þess að bæta flóttaleiðir með því að koma fyrir stálsvölum á austurhlið 2. og 3. hæðar í verslunar og veitingahúsi á lóð nr. 11 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. júlí 2024, samþykkt.