Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og fjölga notkunareiningum með því að
skipta notkunareiningu 0101 upp í þrjár; 0101, óráðstafað atvinnurými á 1. hæð, rými 0201,
skrifstofurými og 0203, skrifstofurými og til þess að bæta flóttaleiðir með því að koma fyrir
stálsvölum á austurhlið 2.og 3. hæðar í verslunar og veitingahúsi á lóð nr. 11 við Laugaveg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 12. apríl 2024 og afrit af gildum aðaluppdrætti
samþykktum þann 5. október 2010. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí sl., fylgir
erindi.