Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. maí 2024 var lögð fram umsókn
Stay ehf.
, dags. 16. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Einholts-Þverholts vegna lóðarinnar nr. 2 við Einholt. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að heimilt verði að hækka húsið um tvær hæðir þar sem efsta hæðin er inndregin og skilgreina byggingarreit fyrir lyftuhús og yfirbyggð bílastæði með þakgarði. Einnig verði gert ráð fyrir fjórum svalaeiningum, með svalalokunum að hluta, á 2.-4. hæð sem ná allt að 1,6 m út fyrir byggingarreit ásamt því að gert er ráð fyrir þjónusturými í tengslum við fyrirhugað torg á horni Einholts og Stórholts, samkvæmt uppdrætti Apparat, dags. 15. apríl 2024. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdrættir Apparat, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Umsækjandi hafi samband við embættið.