Kópavogur - Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir - Nýtt deiliskipulag og breyting á deiliskipulagsáætlunum - Umsagnarbeiðni
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1020
24. júlí, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 11. júlí 2025, þar sem óskað er eftir umsögn um skipulagslýsingu, dags. 13. júní 2025, fyrir nýtt deiliskipulag Vatnsvíkur, breytingu/nýtt deiliskipulag Vatnsendahlíðar og breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla. Einnig sem skipulagslýsing fjallar um breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavelli. Markmið vinnunnar er að skipuleggja Íbúðarbyggð í Vatnsendahlíð og Vatnsvík í góðu samhengi við núverandi byggð og í góðum tengslum við náttúru svæðisins. Einnig er forsenda breytinga að finna þarf þjónustumiðstöð Kópavogs nýja staðsetningu sem uppfyllir þarfir starfseminnar. Einnig er lögð fram samráðsáætlun, dags. 10. júní 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.