Einholt-Þverholt - Breyting á deiliskipulagi - Einholt 2
Einholt 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 966
23. maí, 2024
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Stay ehf. , dags. 16. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Einholts-Þverholts vegna lóðarinnar nr. 2 við Einholt. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að heimilt verði að hækka húsið um tvær hæðir þar sem efsta hæðin er inndregin og skilgreina byggingarreit fyrir lyftuhús og yfirbyggð bílastæði með þakgarði. Einnig verði gert ráð fyrir fjórum svalaeiningum, með svalalokunum að hluta, á 2.-4. hæð sem ná allt að 1,6 m út fyrir byggingarreit ásamt því að gert er ráð fyrir þjónusturými í tengslum við fyrirhugað torg á horni Einholts og Stórholts, samkvæmt uppdr. Apparat, dags. 15. apríl 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.
Svar

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103179 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008695