Kjalarnes, Esjumelar - breyting á deiliskipulagi - Koparslétta 4-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 970
20. júní, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Grímu arkitekta ehf. , dags. 20. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 4-8 við Koparsléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til norðvesturs í átt að Koparsléttu, næst innkeyrslu á lóðina, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta, dags. 16. mars 2024. Stækkunin er tilkomin vegna dreifistöðvar Veitna sem nauðsynlegt er að reisa á svæðinu. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. maí 2024 til og með 13. júní 2024. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.