Lögð fram umsókn
Grímu arkitekta ehf.
, dags. 20. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 4-8 við Koparsléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til norðvesturs í átt að Koparsléttu, næst innkeyrslu á lóðina, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta, dags. 16. mars 2024. Stækkunin er tilkomin vegna dreifistöðvar Veitna sem nauðsynlegt er að reisa á svæðinu.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.