Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. apríl 2024 var lögð fram umsókn
Grímu arkitekta ehf.
, dags. 20. mars 2024, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela á Kjalarnesi vegna lóðarinnar nr. 4-8 við Koparsléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er stækkaður til norðvesturs í átt að Koparsléttu, næst innkeyrslu á lóðina, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta, dags. 16. mars 2024. Stækkunin er tilkomin vegna dreifistöðvar Veitna sem nauðsynlegt er að reisa á svæðinu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Koparsléttu 3.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. sbr. gr. 12. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.