Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Teiknistofunnar Storð ehf., dags. 5. febrúar 2024, ásamt bréfi, dags. 5. febrúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Kjalarness, Esjumela og Varmadals, vegna lóðarinnar nr. 2-8 við Silfursléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipta lóðinni upp í fjórar lóðir,nýtingarhlutfall verðifest með nýtinguna 0,60 og krafa um mænisstefnu bygginga verði felld niður, auk þess verða innkeyrslur færðar til samræmis við breytt skipulag og að kvaðir settar inn um sameiginlega aðkomu og umferð innan lóðar, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 5. febrúar 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.