Kjalarnes, Esjumelar og Varmidalur - breyting á deiliskipulagi - Silfurslétta 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 956
7. mars, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar 2024 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Storð ehf., dags. 5. febrúar 2024, ásamt bréfi, dags. 5. febrúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Kjalarness, Esjumela og Varmadals, vegna lóðarinnar nr. 2-8 við Silfursléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í fjórar lóðir, nýtingarhlutfall verður fest með nýtinguna 0,60 og núverandi innkeyrslur færðar til að bæta aðkoma inn á lóðirnar. Auk þess er afmarkað svæði á hverri lóð fyrir kvöð um umferð innan lóðar og á milli byggingarreita hverrar lóðar ásamt því að krafa um mænishæð er felld niður, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 5. febrúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Silfursléttu 1, 3, 5, 5A, 7, 9 og 11.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.
Svar

Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.