Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Teiknistofunnar Storð ehf. ásamt bréfi, dags. 14. desember 2023, um breytingu á deiliskipulagi Grafarlækjar, Stekkjarmóa og Djúpadals. Í breytingunni sem lögð er til felst að hluti deiliskipulags fellur niður vegna skörunar við tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hádegismóa og mun svæðið verða hluti af því deiliskipulagi, auk þess er núverandi reiðleið hliðruð til, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 14. desember 2023.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.