Ofanleiti 1 og 2 - breyting á skilmálum deiliskipulags - Ofanleiti 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 989
14. nóvember, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Verkís hf., dags. 27. október 2023, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Ofanleitis 1 og 2 vegna lóðarinnar nr. 2 við Ofanleiti. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að setja upp allt að 43 m2 stafrænt þjónustuskilti á vesturgafl hússins, Þeirri hlið sem snýr að Kringlumýrarbraut, samkvæmt tillögu Verkís, dags. 8. janúar 2024, br. 14. nóvember 2024. Einnig er lögð fram umsögn Vegagerðarinnar, dags. 5. desember 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. ágúst  2024 til og með 4. september 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Reitir fasteignafélag hf. húseigandi Kringlunnar 1, dags. 2. september 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. september 2024 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. nóvember 2024.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 14. nóvember 2024, og með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar