Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Verkís hf., dags. 27. október 2023, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Ofanleitis 1 og 2 vegna lóðarinnar nr. 2 við Ofanleiti. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að setja upp allt að 43 m2 stafrænt þjónustuskilti á vesturgafl hússins, Þeirri hlið sem snýr að Kringlumýrarbraut, samkvæmt tillögu Verkís, dags. 8. janúar 2024. Einnig er lögð fram umsögn Vegagerðarinnar, dags. 5. desember 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. ágúst 2024 til og með 4. september 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir:
Reitir fasteignafélag hf.
húseigandi Kringlunnar 1, dags. 2. september 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.