Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. nóvember 2023 var lögð fram umsókn
Verkís hf.
, dags. 27. október 2023, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Ofanleitis 1 og 2 vegna lóðarinnar nr. 2 við Ofanleiti. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að setja upp allt að 43 m2 stafrænt þjónustuskilti á vesturgafl hússins, Þeirri hlið sem snýr að Kringlumýrarbraut, samkvæmt tillögu Verkís, dags. 8. janúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Vegagerðarinnar, dags. 5. desember 2023.
Leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa, dags. 27. júní 2024.
Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Kringlunni 1 og Listabraut 3.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. gr. 7.6. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.