Vesturhöfn - Örfirisey - breyting á deiliskipulagi - Fiskislóð 15-21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 939
2. nóvember, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. október 2023 var lögð fram umsókn DAP ehf., dags. 6. október 2023, ásamt greinargerð, dags. 6.október 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 15-21 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreindir eru þrír byggingarreitir á lóð til að koma fyrir eldsneytisdælum og rafhleðslustöðvum, samkvæmt uppdr. DAP, dags. 4. október 2023. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 6. október 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Umsækjandi hafi samband við embættið.
Svar

Umsækjandi hafi samband við embættið.