Lögð fram umsókn Lárusar Ragnarssonar, dags. 27 september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 18 við Esjumela. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á byggingarmagni, stækkun á millilofti, að bætt verður við svölum á 2. hæð og hæðin skilgreind sem vinnustofur, að svalir á 2. hæð nái út fyrir byggingareit og fjölgun bílastæða, samkvæmt uppdr.
Ártúns ehf.
, dags. 22. maí 2023. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar. Einnig eru lögð fram grunnmynd og útlit
Ártúns ehf.
, dags. 15. mars 2023.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 997/2023.