Vesturhöfn - Örfirisey - breyting á deiliskipulagi - Fiskislóð 15-21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 972
4. júlí, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn DAP ehf., dags. 6. október 2023, ásamt greinargerð, dags. 6.október 2023, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 15-21 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreindir eru þrír byggingarreitir á lóð til að koma fyrir eldsneytisdælum og rafhleðslustöðvum, samkvæmt uppdr. DAP, dags. 4. október 2023, br. 1. júlí 2024. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 4. október 2023. Tillagan var auglýst frá 15. febrúar 2024 til og með 4. apríl 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsagnir: Florian Stascheck, dags. 29. febrúar 2024,  Bryndís Björnsdóttir f.h. Veitna, dags. 11. mars 2024, Heimir Snær Guðmundsson f.h. íbúaráðs Vesturbæjar, dags. 19. mars 2024, Landsamtök hjólreiðamanna, dags. 30. mars 2024 og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 4. apríl 2024. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. apríl 2024 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.