Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Aflétt úr trúnaðarbók, kynning sem lögð var fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 1.liður, dags. 22. apríl 2026, um Sæbrautarstokk, mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs Sæbrautarstokks. Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon lagði fram svohljóðandi bókun sem var færð í trúnaðarbók: Mikilvægt er að staðið verði þannig að undirbúningi Sæbrautarstokks að mannvirkið beri hina miklu umferð, sem fyrirsjáanlegt er að fari um brautina til framtíðar. Við hönnun svo viðamikils mannvirkis er lágmarkskrafa að raunsæis verði gætt og það miðað við áætlaða umferð um Sæbraut til framtíðar. Þjóni göngin ekki sómasamlega því hlutverki sínu að greiða fyrir umferð, yrði miklum fjármunum kastað á glæ. Nú er áætlað að kostnaður við Sæbrautargöng muni nema um 27 milljörðum króna að því er fram kom á fundinum. Rúmlega 29 þúsund bifreiðar fóru um Sæbraut á sólarhring árið 2019. Hönnun ganganna miðast við 41 þúsund bifreiðar en árið 2040 er þó áætlað að um 49 þúsund bílar fari um hana á sólarhring að því er fram kom á fundinum. Æskilegt er að hönnun ganganna taki mið af áætlaðri umferð til framtíðar en í ljósi áðurnefndra talna vakna spurningar um hvort það sé gert. Komið hefur fram að um 2/3 hlutar ganganna verði sex akreinar (3+3) að svokölluðum blöndunarreinum meðtöldum. Í ljósi vaxandi umferðar um Sæbraut til framtíðar er rétt að metið verði sérstaklega hvort ekki sé ástæða til að öll göngin verði sex akreinar á breidd með 3+3 útfærslu.