Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Lárusar Ragnarssonar, dags. 27 september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 18 við Esjumela. Í breytingunni sem lögð er til felst aukning á byggingarmagni, stækkun á millilofti, að bætt verður við svölum á 2. hæð og hæðin skilgreind sem vinnustofur, að svalir á 2. hæð nái út fyrir byggingareit og fjölgun bílastæða, samkvæmt uppdr.
Ártúns ehf.
, dags. 22. maí 2023. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar. Einnig eru lögð fram grunnmynd og útlit
Ártúns ehf.
, dags. 15. mars 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. janúar 2024 til og með 31. janúar 2024. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.