Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar, dags. 7. júní 2024, þar sem óskað er eftir umsögn vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir Arnarland (Arnarnesháls) í Garðabæ. Deiliskipulagstillagan nær til 8,9 h svæðis sem í aðalskipulagi nefnist Arnarnesháls og afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi og Arnarnesvegi. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð með 3-6 hæða fjölbýlishúsum ásamt atvinnu-, verslunar og/eða þjónustuhúsnæði næst Hafnarfjarðarvegi. Sérstök kennileitisbygging/atvinnuhúsnæði getur orðið allt að 8 hæðir. Tvær aðkomuleiðir eru að byggðinni, megin aðkoma að byggðinni er frá Fífuhvammsvegi en einnig er gert ráð fyrir undirgöngum undir Arnarnesveg frá Akrabraut fyrir akandi og gangandi/hjólandi umferð. Gert er ráð fyrir sér undirgöngum fyrir Borgarlínu við Hafnarfjarðarveg. Til móts við atvinnuhúsnæði fyrir miðju svæðisins er gert ráð fyrir verslunar- og/eða þjónusturými á jarðhæðum í tengslum við miðlægt torg þar sem m.a. er gert ráð fyrir biðstöð Borgarlínu. Á svæðinu er gert ráð fyrir u.þ.b. 500 íbúðum og u.þ.b. 40.000 m² af verslunar, skrifstofu og þjónusturými. Meginmarkmið skipulagsins er að leggja grunn að öflugu borgarumhverfi sem styður við svæðið sem samgöngumiðað svæði við samgöngu- og þróunarás. Helstu áherslur eru á starfsemi og uppbyggingu sem styður við virkan lífsstíl og blandaða byggð með þjónustu í nærumhverfinu og góða og skilvirka tengingu við megin umferðaæðar, stíga og opin svæði. Einnig eru lagðir fram deiliskipulags- og skýringaruppdrættir Nordic Office of Architecture , dags. 29. maí 2024, ásamt greinargerð, dags. 29. maí 2024.
Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags.