Garðabær - Arnarland - Nýtt deiliskipulag - Umsagnarbeiðni
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 931
7. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Garðabær - Arnarland - deiliskipulag - umsagnarbeiðni - USK23090043 Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar, dags. 31. ágúst 2023, vegna forkynningu á gerð nýs deiliskipulags fyrir Arnarland í Garðabæ. Tillagan gerir ráð fyrir þéttri blandaðri byggð, með áherslu á heilsutengda starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar m.a. í samræmi við markmið um uppbyggingu á samgöngu og þróunarás. Hámarkshæð verður almennt 3-6 hæðir en kennileitisbygging næst Hafnarfjarðarvegi geti orðið allt að 9 hæðir. Aðkoma verður frá Fífuhvammsvegi og um göng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Gert er ráð fyrir því að Borgarlína sem fylgir Hafnarfjarðarvegi liggi um svæðið.Einnig er lagður fram deiliskipulagsuppdráttur, ódags., greinargerð, dags. í ágúst 2023, og umhverfisskýrsla, dags. 15. ágúst 2023. Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags.