Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar, dags. 7. júní 2024, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna Arnarlands (Arnarnesháls). Tillagan gerir ráð fyrir því að reit fyrir verslun og þjónustu, 3.37 Vþ, í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar verði breytt í miðsvæði (M). Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri blandaðri byggð, með áherslu á heilsutengda starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar m.a. í samræmi við markmið um uppbyggingu á samgöngu og þróunarás. Hámarkshæð verður almennt 3-6 hæðir en kennileitisbygging næst Hafnarfjarðarvegi geti orðið allt að 8 hæðir. Aðkoma verður frá Fífuhvammsvegi og um göng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Gert er ráð fyrir því að Borgarlína sem fylgir Hafnarfjarðarvegi liggi um svæðið. Einnig er lagður fram uppdráttur TEIKNA, Teiknistofu arkitekta, dags. 29. maí 2024 og umhverfismatsskýrsla Eflu, dags. 29. maí 2024.
Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags.