Fyrirspurn
Fálkagötureitur - breyting á deiliskipulagi - Fálkagata 23 - USK23080097 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2023 var lögð fram umsókn Trípólí ehf., dags. 15. ágúst 2023. um breytingu á deiliskipulagi Fálkagötureita vegna lóðarinnar nr. 23 við Fálagötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit, auka byggingarmagn og hækka nýtingarhlutfall, en til stendur að reisa einlyfta viðbyggingu austan við núverandi hús með einhalla þaki og lengja núverandi geymsluskúr til suðurs, sem byggður er upp að vesturgafli Fálkagötu 21, og breyta honum í íbúðarrými, samkvæmt uppdr. Trípólí Arkitekta, dags. 9. ágúst 2023. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Fálkagötu 21, 23A, 26, 28 og 30 . Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 997/2023.