Fyrirspurn
Haðarstígur 12 - USK23040232 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júlí 2023 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti á báðum hliðum, lækka gólf í kjallara, grafa frá húsi og innrétta íbúð í kjallara parhúss nr. 12 á lóð nr. 12-14 við Haðarstíg. Einnig er lagður fram tölvupóstur Andra Gunnars Lyngberg Andréssonar, dags. 16. ágúst 2023 ásamt uppfærðum uppdráttum, dags. 21. apríl 2023. Lögð fram leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa, dags. 14. september 2023. Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Haðarstíg 8, 10, 15, 16 og 18, Njarðargötu 37-41 og Bragagötu 28, 30 og 32. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 997/2023.