Fyrirspurn
Vogabyggð svæði 3 - nýtt deiliskipulag - SN220729 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2023 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 25. júlí 2023, þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis og/ eða forms deiliskipulagsins vegna eftirfarandi atriða: Afla þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands um tillöguna, afla þarf umsagnar Heilbrigðiseftirlits þar sem um er að ræða heimildir fyrir starfsleyfisskylda starfsemi innan um íbúðarbyggð og gera þarf grein fyrir umhverfisáhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar. Einnig bendir stofnunin á nokkur atriði varðandi framsetningu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 29. september 2023, uppfærðum uppdrætti JVST og Teiknistofunni Tröð, dags. 9. desember 2022, br. 1. október 2023 og svarbréfi skipulagsfulltrúa til Skipulagsstofnunar, dags. 5. október 2023. Lagt fram.