Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
SORPU bs.
, dags. 10. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna- Hallsvegar suður vegna lóðarinnar nr. 14 við Lambhagaveg vegna nýrrar endurvinnslustöðvar Sorpu á lóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að fyrirkomulagi byggingarreits á lóð er breytt ásamt því að byggingarreiturinn er stækkaður og byggingarmagn aukið, samkvæmt uppdr. Nordic, dags. 8. janúar 2025. Tillagan var auglýst frá 6. febrúar 2025 til og með 20. mars 2025. Ábending og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. apríl 2025.