Fyrirspurn
Stekkjarbrekkur-Hallsvegur - (fsp) breyting á -deiliskipulagi - Lambhagavegur 14 - USK23070113 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2023 var lögð fram umsókn SORPU bs. dags. 10. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrekkna - Hallsvegar vegna lóðarinnar nr. 14 við Lambhagaveg vegna nýrrar endurvinnslustöðvar Sorpu á lóð. í breytingunni sem lögð er til felst að fyrirkomulagi byggingarreits er breytt, bætt er við byggingareit fyrir afgreiðslu auk þess sem byggingarreitur er stækkaður og byggingarmagn aukið, samkvæmt uppdr. Nordic, dags. 6. júlí 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnastjóra. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 997/2023.