Samþykkt að synja beiðni um breytingu á deiliskipulagi með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og einu atkvæði Framsóknarflokksins með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn lýsir undrun sinni á því að verið að leggjast gegn beiðni rekstraraðila við Sævarhöfða 2-2A um að fá bílastæði inn á lóð sem heyrir undir starfssemina. Öll starfssemin gengur út á það að selja bíla, með því að synja beiðnina er meirihlutinn að takmarka getu rekstraraðila til stunda sína starfsemi.