Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 935
Annað
Fyrirspurn
Kjalarnes - Tindstaðir - skipulagslýsing - nýtt deiliskipulag - USK23060091 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júní 2023 var lögð fram umsókn Brimgarða ehf. , og Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 7. júní 2023, ásamt skipulagslýsingu Brimgarða ehf. og Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 7. júní 2023, um gerð nýs deiliskipulags í landi Tindstaða í Eilífsdal. Tilgangur deiliskipulagsáætlunar er að koma á formlegu deiliskipulagi fyrir nýtt hænsnabú á landspildunni milli Eyrarfallsvegar nr. 460 og Miðdalsár í Eilífsdal í landi Tindstaða. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 997/2023.