Lögð fram umsókn
Brimgarða ehf.
, dags. 3. júlí 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir landspildu í landi Tindstaða. Tilgangur deiliskipulagsáætlunar er að koma á formlegu deiliskipulagi fyrir nýtt hænsnabú á landspildunni milli Eyrarfallsvegar nr. 460 og Miðdalsár í Eilífsdal í landi Tindstaða, samkvæmt uppdráttum og greinargerð Storðar-Teiknistofu, dags. 2. júlí 2025. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar, dags. 14. nóvember 2023
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.