Kjalarnes, Tindstaðir - Nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 947
4. janúar, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Brimgarða ehf. , og Teiknistofunnar Storð ehf., dags. 7. júní 2023, ásamt skipulagslýsingu, dags. í október 2023, vegna nýs deiliskipulags í landi Tindstaða í Eilífsdal. Tilgangur deiliskipulagsáætlunar er að koma á formlegu deiliskipulagi fyrir nýtt hænsnabú á landspildunni milli Eyrarfallsvegar nr. 460 og Miðdalsár í Eilífsdal í landi Tindstaða. Lýsingin var kynnt frá 9. nóvember 2023 til og með 28. desember 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsagnir: Vegagerðin, dags. 25. október 2023, Minjastofnun Íslands, dags. 14. nóvember 2023, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, dags. 15. nóvember 2023, Hestamannafélagið Adam, dags. 21. nóvember 2023, Kjósarhreppur, dags. 23. nóvember 2023, Karen Rós Róbertsdóttir, dags. 29. nóvember 2023, Umhverfisstofnun, dags. 29. nóvember 2023, Erla Aðalsteinsdóttir og Ólafur Þór Júlíusson, dags. 29. nóvember 2023, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 29. nóvember 2023, Ernst Christoffel Verwijnen og Pimpernel Wernars, dags. 30. nóvember 2023, Sigurbjörn Magnússon og Hlíf Sturludóttir, dags. 30. nóvember 2023, Sigurbjörn Magnússon lögmanns hjá Juris f.h. Hauks Óskarssonar, Sigurbjörns Hjaltasonar, Bergþóru Andrésdóttur, Orra Snorrasonar, Maríu Dóru Þórarinsdóttur, Guðmundar Davíðssonar, Svanborgar Magnúsdóttur, Hafþórs Finnbogasonar og Ólafar Óskar Guðmundsdóttur, dags. 30. nóvember 2023, Íbúasamtök Kjalarness, dags. 30. nóvember 2023, Skipulagsstofnun, dags. 5. desember 2023 og íbúaráð Kjalarness, dags. 15. desember 2023.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.