Fyrirspurn
Sólvallagata 14 - USK23050255 Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. ágúst 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, byggja lyftuhús norðan aðalinngangs, byggja yfir svalir ofan á inngangi, gera nýjan inngang og tröppur á norðurhlið 1. hæðar að eldhúsi íbúðarhúss, mhl.01, byggja ofan á bílskúr, mhl.02, með aðgengi um utanáliggjandi stiga meðfram vesturhlið, jafnframt því að byggia vaktskýli, mhl.03, fyrir öryggisgæslu í suðvestur horni lóðar og reisa öryggisgirðingu inn á lóð og meðfram lóðarmörkum aðliggjandi lóða einbýlishúss á lóð nr. 14 við Sólvallagötu. Vísað til meðferðar verkefnastjóra.