Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, byggja
lyftuhús norðan aðalinngangs, byggja yfir svalir ofan á inngangi, gera nýjan inngang og
tröppur á norðurhlið 1. hæðar að eldhúsi íbúðarhúss, mhl. 01, byggja ofan á bílskúr, mhl. 02,
með aðgengi um utanáliggjandi stiga meðfram vesturhlið, jafnframt því að byggia vaktskýli,
mhl. 03, fyrir öryggisgæslu í suðvestur horni lóðar og reisa öryggisgirðingu inn á lóð og
meðfram lóðarmörkum aðliggjandi lóða einbýlishúss á lóð nr. 14 við Sólvallagötu.
Stækkun Mhl01: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Stækkun Mhl.02: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Stærð Mhl.03 10.0 ferm., 28.0 rúmm.
Heildarstækkun: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 21. febrúar 2017 og umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 12. október 2023.