Almannadalur 9 - breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 930
31. ágúst, 2023
Annað
Fyrirspurn
Almannadalur 9 - breyting á deiliskipulagi - USK23020066 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðjóns Magnússonar arkitekts, dags. 3. febrúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hesthúsabyggðar á Hólmsheiði vegna lóðarinnar nr. 9 við Almannadal. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á mæni hússins og að gluggar og svalir snúi í suðurátt, samkvæmt uppdr. Guðjóns Magnússonar arkitekts, dags. 8. mars 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 31. maí 2023 til og með 28. júní 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Bjarni Jónsson, Lilja Svavarsdóttir, Hannes Einarsson, Svanur Guðmundsson, Ragnar Hilmarsson og Guðrún Jóna Thorarensen, dags. 3. maí 2023, Edda Björk Karlsdóttir, dags. 17. júní 2023, Þorgeirs Benediktssonar formanns Almannadalsfélagsins f.h. húseigenda í Almannadal, dags. 21. júní 2023, Bjarni Jónsson f.h. húseigenda í Almannadal, dags. 27. júní 2023 og stjórn hestamannafélagsins Fáks, dags. 27. júní 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023 og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.