Langholtsvegur 47 -(fsp) breyting á deiliskipulagi
Langholtsveg 47
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 940
9. nóvember, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar, um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðarinnar nr. 47 við Langholtsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að gerður er nýrbyggingarreitur austan við húsið fyrir stakstætt, tímabundið og færanlegt húsnæði. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. september 2023 til og með 18. október 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Davíð Pétur Stefánsson, dags. 28. september 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.