Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. júní 2023 var lögð fram umsókn Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar, um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðarinnar nr. 47 við Langholtsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að setja tímabundið niður tvo skrifstofugáma á lóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Langholtsvegi 49 og Efstasundi 42, 44 og 46. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. og 12. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.