Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2023 var lögð fram fyrirspurn Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar, um breytingu á deiliskipulagi Sundanna, reita 1.3 og 1.4, vegna lóðarinnar nr. 47 við Langholtsveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að setja tímabundið niður tvo skrifstofugáma á lóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju.
Frestað. Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.