Fyrirspurn
Almannadalur 9 - breyting á deiliskipulagi - USK23020066 Lögð fram umsókn Guðjóns Magnússonar arkitekts, dags. 3. febrúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hesthúsabyggðar á Hólmsheiði vegna lóðarinnar nr. 9 við Almannadal. Í breytingunni sem lögð er til felst hækkun á mæni hússins og að gluggar og svalir snúi í suðurátt, samkvæmt uppdr. Guðjóns Magnússonar arkitekts, dags. 31. janúar 2023. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.