Skarfagarðar 4 - breyting á deiliskipulagi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 905
23. febrúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Skarfagarðar 4 - breyting á deiliskipulagi - USK23010260 Lögð fram umsókn Hampiðjunnar, dags. 23. janúar 2023, ásamt bréfi Arkís arkitekta, dags. 18. janúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 4 við Skarfabakka. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina byggingarreiti og stækka byggingarreit til suðausturs í átt að Skarfagörðum 6. Byggingarreitur norðvestan við núverandi byggingu er minnkaður og er aðlagaður að núverandi byggingu, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta, dags. 12. janúar 2023. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.