Frestað. Lagfæra skráningu.
23. Laugavegur 33, 33A og 33B - BN059113 Sótt er um leyfi til að breyta gluggum, fjarlægja
múrhúð, gera svalir á vesturhlið 2. hæðar og á götuhlið 2. og 3. hæðar og færa til upprunalegs
útlits hús á lóð nr. 33, 33A og 33B við Laugaveg. Erindi fylgir yfirlit breytinga, umsögn
Minjastofnunar Íslands dags. 22. mars 2021 og dags. 27. september 2021.Gjald kr. 12.100.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
24. Nökkvavogur 42 - BN061876 Sótt er um leyfi til þess að breyta glugga í hurð og gera svalir á
suðausturhlið íbúðar 0101 með stiga niður í garð tvíbýlishúss á lóð nr. 42 við Nökkvavog.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á teikningu Plús arkitekta og A3 afrit af eldri samþykktum
aðalteikningum.
25. Rafstöðvarvegur 14 - BN061824 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir lyftu
og innrétta gestastofu, viðburðarrými, skrifstofur og fundarherbergi, fjarlægja
utanhússklæðningar og endurgera straumskiptistöð Orkuveitu Reykjavikur á lóð nr. 14 við
Rafstöðvarveg.
Erindi fylgir yfirlit og lýsing breytinga dags. 27. október 2022, umsögn Minjastofnunar dags. 1.
nóvember 2022 og greinargerð um brunahönnun dags. 23. nóvember 2022. Gjald kr. 13.200.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
26. Síðumúli 15 - BN061812 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi norðurenda 2. hæðar og
3. hæðar, á 2. hæð er innréttað fyrir snyrtistofu, í húsi á lóð nr. 15 við Síðumúla.
Erindi fylgir greinargerð brunahönnuðar dags. 18. nóvember 2022 og yfirlit breytinga unnið á
afriti aðaluppdrátta útgefna þann 6. júní 1973.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
27. Skeifan 11 - BN061770 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN061362 þannig að innra
fyrirkomulag verslunar er breytt á húsi nr. 11 á lóð Skeifunnar.
Bréf hönnuðar dagsett 14.nóvember 2022 fylgir erindinu.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.
28. Skipholt 5 - BN061792 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059811 - svalir/flóttapallur
íbúðar 0201 er minnkaður og flóttaleið færð og verði út um baðherbergi íbúðar, í húsi
matshluta nr. 01, á lóð nr. 5 við Skipholt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti útgefinna aðaluppdrátta erindis BN059811.
29. Skúlagata 4 - BN061487 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059608 þannig að gerðir verða
gluggar á aðstöðu bílstjóra á norðurhlið 1. hæðar og innra skipulagi er breytt á 4., 5. og 6. hæð
í húsi á lóð nr. 4 við Skúlagötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga og brunahönnun frá Verkís dagsett
13. september 2022.Gjald kr. 12.600.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum
verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
30. Skúlagata 40-40B - BN061751Spurt er um leyfi til að breyta skráningu á íbúðarherbergi, rými
09-0203, í íbúð, í húsi nr. 40 á lóð nr. 40-40B við Skúlagötu.
31. Suðurlandsbraut 34/Ár - BN061572 Sótt er um leyfi til byggingar á staðsteyptu fjölbýlishúsi,
byggingin er sjö hæðir auk kjallara með 69 íbúðum, verslun og þjónustu á 1. hæð til norðurs,
í norðurhorni lóðar, sorplausn íbúða í sjö djúpgámum norðvestan A reits orkureits, matshluti
nr. 02, á lóð Suðurlandsbraut 34/Ár.
Stærð mhl.02: 6.506,6 ferm., 20.222,5 rúmm.
Erindi fylgir greinargerð hljóðvistar dags. 3. október 2022. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. nóvember 2022 fylgir erindi, ásamt
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags.
25. nóvember 2022.
Umsókn um niðurrif er í erindi BN061409.
32. Tómasarhagi 32 - BN061473 Sótt er um leyfi til að gera stiga milli íbúða í kjallara og á 1.
hæð og sameina í eina eign, færa sorp út á lóð og breyta eignaskiptum í kjallara fjölbýlishúss
á lóð nr. 32 við Tómasarhaga.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og samþykki meðeigenda dags. 6. júlí 2022.