Frestað. Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlitsins.
20. Kleifarvegur 12 - Breytingar kjallara - garðskáli 1.hæð - BN061567 Sótt er um leyfi til að
breyta innra skipulagi í kjallara, baðherbergi er endurnýjað og stækkað og garðskála er
komið fyrir undir svölum 1. hæðar húss á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Stækkun: 31,7 ferm., 73,1 rúmm.
Erindi fylgir umboð eiganda íbúðar 01-0101 dags. 29. september 2022, samþykki í formi
áritunar á smækkað afrit aðaluppdráttar dags. 29. september 2022, afrit fundargerðar
húsfélags dags. 16. október 2022. og yfirlit breytinga unnið á afrit aðaluppdrátta erinda
BN057778 og BN058529. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar
skipulagsfulltrúa 20. október 2022 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 18. október 2022 og
bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.
21. Korngarðar 1 - BN061727 Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. hæðar og millipalls,
matshluti nr. 01, í húsi á lóð nr. 1 við Kornagarða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti útgefinna aðaluppdrátta erinda BN056501 og
BN058458.