Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
34. Vesturgata 64 - BN061373 Sótt er um leyfi til að stækka bílakjallara, mhl. 08 og byggja þrjú
steinsteypt fjölbýlishús, þriggja og fimm hæða með 58 íbúðum, einangruð og klædd að utan á
lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 12. ágúst
2022 og samantekt á brunavörnum frá Mannvit dags. 1. júlí 2022. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 27. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 27. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 28. október
2022. Stærð, mhl. 04: 2.456,4 ferm., 6.753,1 rúmm.Mhl. 05: 2.644,2 ferm., 7.161,7 rúmm.Mhl.
06: 1.840,1 ferm., 6.137,1 rúmm.Mhl. 08, stækkun bílageymslu: xx Gjald kr. 12.600.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum
verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og
skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp
skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt
umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar
á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær
yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilið
samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.