Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka hús í matshluta nr. 01, port hússins
hækkað og byggt yfir vesturenda og stækkað til suðurs, jafnframt er sótt um að sameina matshluta nr.
04 og nr. 01 og fjölga íbúðum um eina, í matshluta nr. 01, í húsi nr. 53 á lóð nr. 53-53A við
Vesturgötu. Stærð eftir breytingu: 231,1 ferm., 649,1 rúmm. Eldra erindi BN059534 dregið til baka
með tölvupósti. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 20. desember 2022, greinargerð
brunahönnuðar dags. 20. desember 2022, heildar varmataps rammi dags. 20. desember 2022, afrit
eyðublaðs byggingarleyfis og gátlisti aðaluppdrátta ódags., afrit starfsábyrgðartryggingu hönnuða
dags. 20. maí 2022, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 12. október 2022, ástandsskýrsla ráðgjafa
dags. 17. febrúar 2023, minnisblað ráðgjafa dags. 21. febrúar 2023 og mæliblað. Afgreitt á fundi
skipulagsfulltrúa 16. mars 2023. Erindi fylgir teikning skuggavarps dags. 20. mars 2023. Gjald:
14.000.