Hraunteigur 30 - breyting á deiliskipulagi
Hraunteig 30
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 931
7. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Teigahverfi - breyting á deiliskipulagi - Hraunteigur 30 - USK22122878 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndals dags. 12. desember 2022 ásamt bréfi, dags. 12. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna lóðarinnar nr. 30 við Hraunteig. Í breytingunni sem lögð er til felst að gerður er nýr byggingarreitur á lóð fyrir vinnustofu, samkvæmt uppdr. Alark, dags. 12. desember 2022, br. 7. september 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. apríl 2023 til og með 31. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Ásdís Magnea Þórðardóttir, Ólafur H. Baldursson og Alma - Fasteignafélag, dags. 22. maí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. júní 2023 og er nú lagt fram að nýju ásamt skuggavarpi, dags. 29. júní 2023 og bréfi frá embætti skipulagsfulltrúa, dags. 13. júlí 2023, þar sem gefinn var auka frestur til að koma með athugasemdir til 25. júlí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir vegna viðbótargagna: Ásdís Magnea Þórðardóttir, Ólafur H. Baldursson og Alma - fasteignafélag, dags. 17. júlí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. ágúst 2023 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. september 2023. Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 7. september 2023, og með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.