Fyrirspurn
Vetrargarður í Breiðholti - SN220441 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. ágúst 2023 var samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Vetrargarðinn í Breiðholti, nánar tiltekið fyrir móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Erindi er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 6. september 2023, þar sem óskað er eftir framlengingu á gildistíma á framkvæmdaleyfi. Samþykkt að framlengja gildistíma framkvæmdaleyfisins til 31. janúar 2025.