Fyrirspurn
Sævarhöfði 6-10 - framkvæmdaleyfi - USK23080080 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2023 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 9. ágúst 2023, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda nýrra gatna og bygginga á Ártúnshöfða sem felst í að uppgrafið mengað jarðvegsefni verði geymt á lóð nr. 6-10 við Sævarhöfða. Einnig er lagt fram Minnisblað Eflu, dags. 31. júlí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2023. Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 7. september 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.4 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa, Sævarhöfði 6-10