Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 713
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ljóssins styrktarfélags Krabbameins um breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðanna nr. 43-45 og 47 við Langholtsveg. Í breytingunni felst sameining lóðanna og stækkun á byggingarreit, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 22. nóvember 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. desember 2018 til og með 21. janúar 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar