Lögð fram fyrirspurn
Batterísins arkitekta ehf.
dags. 2. apríl 2014 varðandi stækkun hússins á lóðinni nr. 43 við Langholtsveg, samkvæmt frumdrögum
Batterísins arkitekta ehf.
dags. 1. apríl 2014. Einnig er lagt fram bréf Ernu Magnúsdóttur forstöðumanns Ljóssins dags. 25. febrúar og samþykki lóðarhafa dags. 26. mars 2014.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrisrpyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.