Á fundi skipulagsfulltrúa 28. febrúar 2014 var lögð fram fyrirspurn
Batterísins arkitekta ehf.
dags. 26. febrúar 2014 varðandi stækkun hússins á lóðinni nr. 43 við Langholtsveg, samkvæmt frumdrögum
Batterísins arkitekta ehf.
dags. 25. febrúar 2014. Einnig er lagt fram bréf Ernu Magnúsdóttur forstöðumanns Ljóssins dags. 25. febrúar 2014. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2014..
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2014 samþykkt.