Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar f.h.
Faxaflóahafna sf.
mótt. 12. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að bætt verður við nýrri lóð með byggingarreit 14 á Faxagarði fyrir spenni- og rafdreifistöð auk vaktaðstöðu, samkvæmt uppdr.
Batterísins Arkitekta ehf.
dags. 13. nóvember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.